|
Akraborgin –
Um öldur sú ástsæla dugga
að eilífu hætt er að rugga.
Ég er í sorg
mín Akraborg
og ekkert mun hjarta mitt hugga.
Skagamenn –
Þótt farin sé Akranes örkin
þá iðka menn fótboltaspörkin,
keyra um Göngin
svo kyrja þeir sönginn:
-Skagamenn skoruðu mörkin.
Bæjarstjóri og bæjarráð –
Guðmundur, Sveinn og hann Gunnar
og Gísli – þeir viskunnar brunnar
þeir boða á daginn
að betri sé Skaginn
en byggðin sem er hérna sunnar.
Kalmansvík –
Í Kalmansvík hóparnir halda
og hjörtun þau fá því að valda
að fegurð og ást
fari að sjást
er fólið er búið að tjalda.
Golf –
Bjartur er vegurinn beini
hjá birki og víði og reyni
er fá menn að slá
með fullkomna þrá
og fara í golfið hjá Leyni.
Garðavellir –
Hér yndið skal ævina móta
því unaðinn flestir hér hljóta.
Við Garðavelli
hjá glæstu felli
er gaman að elska og njóta.
Írskir dagar –
Þá írsku og ástríku daga
að eilífu geymir vor saga
því Bekan og Kjaran
blessa nú skarann
sem brosir og hlær uppá Skaga.
Strandblak –
Í strandblaki gott er að strita
með steikjandi sólskin og hita,
hafa skal læti,
hoppa af kæti
og rúlla í sandi og svita.
Lopapeysuball –
Með peysur úr lopa og Papa
menn partý við skorsteininn skapa
í kærleik og hita
konurnar vita
að karlarnir vitinu tapa.
HB Grandi –
Ef forðumst við vosbúð og vanda
og viljum á réttinum standa
þá sækjum við fisk
á silfraðan disk
í sjóinn með HB og Granda. |
Skagamenn –
Við höfum í hjörtunum máttinn
og hugsum mum menningarþáttinn,
því Skagamenn
þeir skora enn
og helst ef þeir komast í háttinn.
Sundlaugarpartý –
Lauginni mannfólk er margt í
og mikið er hjörtunum bjart í
því alla mun kæta
ef unglingar mæta
í sannkallað sundlaugarpartý.
Grillstemmning, götugrill –
Er Skagamenn tjútta og tjilla
þeir tínast í bæinn og grilla
með Írland í huga
skal ánægjan duga
og öllu er stjórnað af Gilla.
Bryggjan, sjómenn og dorgveiði –
Á bryggjunni okkur er boðið
að bítast um sporðinn og roðið
því ýmsir þar dorga
án þess a borga
og allir fá eitthvað í soðið.
Fótbolti –
Með festu og fullkomnum aga
skal fjalla um æskunnar daga
og flestu má bjarga
er foreldrar garga
í fótbolta uppi á Skaga.
Markaður –
Heimafólk hérna er kjarkað
og hefur um göturnar arkað.
Nú eru til sölu
allir með tölu
menn ætla að fara á markað.
Skemmtisigling inn í Hvalfjörð –
Um Hvalfjörðinn sigla nú saman
í sólinni herrann og daman.
Þótt ekki hann lygni
og eitthvað hann rigni
er öruggt að það verður gaman.
Skógrækt –
Nú gróskunni Skagamenn skarta
með skógrækt hjá fjallinu bjarta.
Skagamenn dafna
í skóginn þeir safna
með sólskin í sérhverju hjarta.
Akrafjallið –
Þótt fótboltalið geti fallið
og flögri frá álveri gjallið,
þótt allt verði slæmt
að eilífu dæmt
þá eigum við fegursta fjallið.
Langisandur með sandkastalakeppni –
Menn byggja og víst er það vandi
þótt virki jafnt handtök og andi,
menn hamast og strita,
hugsa og vita
að hallirnar rísa á sandi.
Fótboltinn –
Síst eru sóknirnar margar,
en seiglan hún liðinu bjargar,
ótal spörk,
eingin mörk
og Óli á línunni gargar. |