Tjaldstæðið í Kalmannsvík
Tjaldstæðið á Akranesi er staðsett í Kalmansvík sem er falleg vík í útjaðri bæjarins. Það er mjög falleg fjallasýn til norðurs þar sem Snæfellsjökull skartar sínu fegursta á björtum sumardögum. Útsýnið er ekki síðra þegar horft er til Akrafjalls. Skemmtilegar gönguleiðir eru meðfram ströndinni og þá er stutt í fjölbreytta þjónustu frá tjaldsvæðinu; verslanir, sundlaug, söfn og golfvöll svo dæmi séu tekin. Þá er hægt að leigja reiðhjól á tjaldsvæðinu og fara hjólandi um Akranes.
Aðstaðan
Tjaldstæðið er vel búið með sturtum og þvottaaðstöðu. Rekstraraðilar leggja sig fram um að halda allri aðstöðu snyrtilegri, og verðlagningu í hófi.
Göngustígar liggja um svæðið til allra átta. Svæðið er einnig áhugasamt svæði fyrir fuglaáhugamenn bæði sjófugl og landfugl.
Opnunartími
1. maí til 30. september
Upplýsingar um tjaldstæðið má einnig nálgast á tjalda.is