Gestir og ferðafólk
Á Akranesi er mannlíf í miklum blóma. Íbúar á Akranesi hafa aldrei verið fleiri og bærinn stækkar ört. Akranes er friðsæll og fallegur bær þar sem fjölskyldur geta búið sér sitt framtíðarheimili. Á Akranesi er einstaklega fjölskylduvænt og öruggt umhverfi þar sem áhersla er lögð á mikla og vandaða þjónustu við íbúa. Öflugt atvinnulíf sem býður upp á örugg störf á margvíslegum vettvangi, ásamt húsnæði á góðu verði, hefur orðið til þess að sífellt fleiri kjósa að búa á Akranesi.
Á Akranesi er alltaf eitthvað að gerast. Hver viðburðurinn rekur annan og reyndar er það svo að fáir dagar líða án þess að eitthvað sé ekki í gangi á sviði menningar, lista eða íþrótta. Á Akranesi er öflugt menningarstarf og reglulega eru haldnir tónleikar, ýmist á vegum einhvers hinna fjölmörgu kóra sem starfandi eru eða einleiks eða einsöngs efnilegra listamanna.
Á Akranesi er mikil áhersla lögð á margvíslega menningarviðburði, bæði til að gera heimamönnum dagamun en líka til að laða að gesti og ferðamenn. Í byrjun júní er blásið til Hátíðar hafsins, daginn fyrir Sjómannadag og þá er vettvangur hátíðahalda hafnarsvæðið. Mikill metnaður er lagður í hátíðahöld Þjóðhátíðardagsins 17. júní á Akranesi og nokkrum dögum síðar halda Skagamenn eitt stærsta íþróttamót sem haldið er á Íslandi, þ.e. hið s.k. Skagamót hinna yngstu á knattspyrnuvellinum. Fyrstu helgi júlímánaðar halda Skagamenn Írska daga hátíðlega með götugrillum og bryggjuböllum. Í byrjun nóvember ár hvert er menningarhátíðin Vökudagar síðan haldin.
Íþróttalífið á Akranesi er landsfrægt, ekki aðeins knattspyrnan heldur er margt fræknasta sundfólk landsins frá Akranesi. Nánast daglega er keppt í einhverri íþrótt á Akranesi. Á sumrin eru haldin fjöldamörg golfmót, jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna golfara og er óhætt að segja að starfsemi Golfklúbbsins Leynis sé afar öflugt og viðburðaríkt. Kynntu þér málið betur á upplýsingavef golfklúbbsins.
Safnasvæðið að Görðum er vettvangur hinnar svokölluðu viðburðaveislu þar sem kennir ýmissa grasa; kleinumeistaramót, sveitarómantík, Sjávardagur, Markaðsdagur og svo mætti lengi telja. Ef þú vilt kynna þér betur það sem Safnasvæðið hefur upp á að bjóða skaltu smella hér.
Á Akranesi er eitt vinsælasta tjaldsvæði landsins - en um leið eitt hið ódýrasta. Þar er fjölbreytt þjónusta í boði og ekki spillir staðsetningin fyrir, við Kalmansvík með útsýni yfir Faxaflóann og allt til Snæfellsjökuls á aðra hönd en Akrafjallið á hina. Stutt er í fjölbreytta þjónustu, verslanir, sund og golf.
Fjölbreytt þjónusta er í boði fyrir gesti og ferðafólk á Akranesi; veitingastaðir og kaffihús, verslanir og gisting. Þá gengur Strætó frá höfuðborgarsvæðinu og upp á Skaga og þar tekur við gjaldfrjáls innanbæjarstrætó. Þá er hægt að leigja sér reiðhjól á Akranesi til að komast á milli staða, enda hvergi betra að hjóla en á flatlendinu á Akranesi.
Kynntu þér vel það sem Akranes hefur upp á að bjóða – þú finnur áreiðanlega eitthvað við þitt hæfi!
Frekari upplýsingar um afþreyingarmöguleika og þjónustu á Akranesi er að finna á ferðavef bæjarins: www.visitakranes.is