Ert þú rauðhærð/rauðhærður?
Hin annálaða keppni rauðhærðra Íslendinga á öllum aldri um það hver þeirra er rauðhærðastur verður að sjálfsögðu haldin á Írskum dögum í sumar, nánar tiltekið laugardaginn 4. júlí 2009 kl. 15:00 í Íþróttamiðstöðinni að Jaðarsbökkum á Akranesi.
Vitað er að fólk hefur fyrir löngu hafið undirbúning með tilheyrandi hár- og skeggsöfnun og -snyrtingum. Væntingarnar eru miklar, bæði meðal keppenda og ekki síður áhorfenda.
Úrslitakeppnin fer fram laugardaginn 4. júlí kl. 15:00 en rauðhærðir eru þó beðnir um að koma a.m.k. 15 mínútum fyrr á svæðið svo dómnefnd geti skoðað og metið allt þeirra rauða hár.
Ef þú ert rauðhærð/-ur og til í spennandi keppni þá skráðu þig endilega til þátttöku. Þú gætir hugsanlega unnið til glæsilegra vinninga - jafnvel ferð til Írlands - en þú kemur örugglega til með að skemmta þér konunglega!
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á eftirfarandi netfang:
tomas.gudmundsson@akranes.is
Með rauðhærðum baráttukveðjum,
Tómas Guðmundsson,
verkefnastjóri Akranesstofu