Skráðu þig á markaðinn!
Að venju verður boðið upp á ekta, íslenskan markað með írsku ívafi á Írskum dögum. Undanfarin ár hafa færri söluaðilar komist að en vilja og því um að gera að skrá sig í tíma. Athugið að þátttaka í markaðnum kostar ekki neitt, þ.e. ekki er rukkað fyrir borð eða aðra aðstöðu.
Skráðu þig hér fyrir neðan og við munum hafa samband við þig með allar nánari upplýsingar.
Markaðurinn verður haldinn í Akraneshöllinni, laugardaginn 2. júlí frá kl. 13:00 til 17:00.
Þátttakendur verða að mæta a.m.k. klukkustund fyrir auglýstan opnunartíma og þurfa að hafa lokið uppsetningu þegar markaðurinn opnar. Ekki er hægt að tryggja pláss ef fólk virðir ekki þessa skilmála og mætir of seint.
Eins er hægt að skrá sig með tölvupósti: tomas.gudmundsson@akranes.is