ForsíðaAf hverju ÍrskirDagskráMyndir
4. júlí 2012 15:01

Nýtt á dagskrá Írskra daga

Eins og áður hefur komið fram hefur dagskrá Írskra daga tekið örlitlum breytingum á síðustu dögum.

Með nýrra dagskrárliða má nefna að Eyjólfur Kristjánsson mun mæta á Akratorg á föstudaginn og skapa réttu stemninguna rétt áður en lokaundirbúningur fyrir götugrillin hefst.

Hér í annarri frétt er þess getið að tívolíð hefur verið flutt á Kirkjubraut og markaðurinn verður í Íþróttahúsinu á Vesturgötu en ekki í Akraneshöll. Þá er rétt að vekja athygli á því að formleg opnun hátíðarinnar fer fram á Akratorgi kl. 14:00 á föstudaginn, en ekki kl. 11:00 eins og áður hafði verið auglýst. Þar munu óvæntir gestir kíkja í heimsókn, börn fá óvæntan glaðning í tilefni Írskra daga og boðið verður upp á hressingu.

Síðdegis á laugardaginn verða tónleikar með Skagahljómsveitinni Cosmic Call á Akratorgi auk þess sem Sólmundur Hólm og Hallgrímur Ólafsson stíga á svið.  Meðal annarra dagskrárliða á laugardaginn má nefna að mikil markaðsstemning verður á Akratorgi, þar verður listgjörningur götulistamanna, andlitsteiknari verður á svæðinu og annað listafólk. Þá munu félagar úr Þjóðlagasveitinni verða á svæðinu og spila ekta írska þjóðlagatónlist.

 

 
Akranesstofa | Stillholt 16-18 | 300 Akranes | Sími 433 1000 | akranes@akranes.is