4. júlí 2012 14:43
Breytingar á dagskrá Írskra daga
Dagskrá Írskra daga verður borin í öll hús á Akranesi síðdegis í dag, miðvikudag. Frá því að dagskráin fór í prentun hafa skipuleggjendur hátíðarinnar þurft að gera nokkrar óviðráðanlegar breytingar á dagskrá hátíðarinnar, auk þess sem ýmsir dagskrárliðir hafa bæst við.
Umræddar breytingar eru m.a. til þess fallnar að færa sem mest af dagskránni í átt að miðbænum, en þar verður fjölbreytt dagskrá og þungamiðja hátíðarinnar að þessu sinni.
Um leið og Skagamenn og gestir hátíðarinnar eru beðnir velvirðingar á þessu er rétt að koma þessum breytingum á framfæri. Helstu breytingar eru þessar:
13:00 Föstudagur og laugardagur - Tívolístemning á Kirkjubraut (ekki á Jaðarsbökkum eins og áður var auglýst) Tívolíið verður ofarlega á Kirkjubraut, en Kirkjubraut verður lokuð við Háholt og verður því göngugata allt niður á Akratorg. Tívolíið verður opið föstudag og laugardag en á svæðinu verða einnig markaðir og fjölbreytt dagskrá á Akratorgi. Verslanir verða opnar um helgina og allskonar tilboð í gangi.
10:00 - 17:00 Laugardagur - Stórmarkaður Írskra daga í Íþróttahúsinu við Vesturgötu (ekki í Akraneshöll eins og áður var auglýst) Af óviðráðanlegum orsökum færum við markaðinn á Vesturgötuna - en um leið verður hann í göngufæri við miðbæinn! Stærsti markaður á Íslandi á Írskum dögum! Frábært tækifæri til að gera góð kaup. Yfir 90 söluaðilar selja allt á milli himns og jarðar. Handverk, listmunir, skartgripir, prjónavörur, matvæli, leikföng, fatnaður, margskonar góðgæti og fleira og fleira!
Uppfærða dagskrá Írskra daga 2012 má finna hér - vinsamlegast kíkið á vefsíðu hátíðarinnar til að fá nýjustu upplýsingar og fréttir um hátíðina.