ForsíðaAf hverju ÍrskirDagskráMyndir
20. júní 2012 13:21

Fjölbreytt dagskrá á Írskum dögum

Bæjarhátíðin Írskir dagar verður haldnin á Akranesi dagana 6. til 8. júlí nk. og verður dagskráin fjölbreytt að vanda. Dagskráin hefst á föstudeginum með lifandi dagskrá í miðbænum en um kvöldið eru svo hin sívinsælu götugrill um allan bæinn. Kvöldvakan í miðbænum er á sínum stað en þar mun hinn eini sanni Páll Óskar stíga á svið.

Dagskrá laugardagsins hefst með sandkastalakeppni og dorgveiðikeppni en aðrir hefðbundnir liðir eru á sínum stað í bland við nýja viðburði. Nefna má markaðinn sívinsæla sem verður í Akraneshöll og tívolí við Íþróttamiðstöðina á Jaðarsbökkum en fregnir herma að það verði óvenju glæsilegt í ár.  Bílasýning verður við Stjórnsýsluhúsið og mýrarbolti við Garðalund, keppnin um reuðhærðasta Íslendinginn o.fl. o.fl. Um kvöldið verður svo hitað upp fyrir Lopapeysuballið með brekkusöng við þyrlupallinn á Jaðarsbökkum.

Dagskrá Írskra daga lýkur svo á sunnudeginum með leiksýningu í Garðalundi en þar verður boðið upp á leiksýninguna vinsælu Gói og baunagrasið.

Nánari dagskrá Írskra daga verður sett í loftið síðar í vikunni, á vef Akraneskaupstaðar og á vef hátíðarinnar, irskirdagar.is.

 

 

 
Akranesstofa | Stillholt 16-18 | 300 Akranes | Sími 433 1000 | akranes@akranes.is