ForsíðaAf hverju ÍrskirDagskráMyndir
1. júlí 2011 15:24

Írskir dagar settir með stæl!

Fjölskylduhátíðin Írskir dagar hófst með látum í morgun þegar liðlega 400 leikskólabörn töldu niður með Árna Múla Jónassyni, bæjarstjóra á Akranesi og settu hátíðina og sungu svo með Ingó Veðurguð sem mætti á Safnasvæðið með gítarinn og tók lagið með börnunum. Raunar leit annar leynigestur við á svæðinu en það var sekkjapípuleikarinn Anthony sem lék nokkur lög fyrir börnin, íklæddur skotapilsi.

Björn Lúðvíksson tók meðfylgjandi stuttmyndir á svæðinu sem endurspegla vel þá skemmtilegu stemningu sem var á svæðinu í morgun.

http://www.youtube.com/watch?v=blPiUse_kBs

http://www.youtube.com/watch?v=4Ljie_yNWKo

Skagamenn tóku reyndar forskot á hátíðina í gær en þá voru haldin fróðleg erindi í Garðakaffi um keltnesk áhrif í íslenskri menningu og tungu að viðstöddu fjölmenni og þá var boðið upp á ekta írska þjóðlagatónlist. Í Stúkuhúsinu sungu Stúkurnar fyrir fullum sal og þá var fullt út úr dyrum á tónleikum Hjálma á Breiðinni.

Írskir dagar byrja því vel og þrátt fyrir smá rigningarskúr nú síðdegis er veðurútlitið gott og stemningin í bænum sömuleiðis fín!

 

 
Akranesstofa | Stillholt 16-18 | 300 Akranes | Sími 433 1000 | akranes@akranes.is