ForsíðaAf hverju ÍrskirDagskráMyndir
30. júní 2011 12:12

Saman ég og þú - og allir saman nu!

Nú eru Írsku dagarnir rétt handan við hornið og undirbúningur hátíðarinnar í hámarki. Skagamenn eru farnir að huga að skreytingum og stemningin magnast með hverjum klukkutímanum. Til að gulltryggja réttu stemninguna þarf fólk að hlusta á lagið "Saman ég og þú" sem samið var sérstaklega fyrir Írska daga á Akranesi. Höfundar lags og texta eru snillingarnir og Skagamennirnir Flosi Einarsson og Gunnar Sturla Hervarsson en lagið er flutt af öðrum Skagamanninum, Hallgrími Ólafssyni og hljómsveitinni Sigurfararnir.

Friðþjófur Helgason, myndsmiður og - jú mikið rétt -  Skagamaður gerði myndband við lagið, með skemmtilegum svipmyndum frá Akranesi sem fanga m.a. vel þá einstöku stemningu sem alltaf er á Írskum dögum.

Saman ég og þú 

 

 
Akranesstofa | Stillholt 16-18 | 300 Akranes | Sími 433 1000 | akranes@akranes.is