ForsíðaAf hverju ÍrskirDagskráMyndir
29. júní 2011 21:09

Nýtt á Írskum dögum

Dagskrá Írskra daga hefur nú tekið á sig nokkuð endanlega mynd en þó hafa nýjir dagskrárliðir bæst við í dag. Um er að ræða sk. "Bryggjugolf" sem golfklúbburinn Leynir mun bjóða upp á við Akraneshöfn en þar gefst fólki kostur á að slá golfkúlur á haf út og freista þess að hitta í mark/holu sem komið verður fyrir úti á miðri höfninni. Er þetta gert í fjáröflunarskyni fyrir klúbbinn.

Þá hefur dagskrá lokahátíðar Írskra daga á sunnudeginum tekið á sig mynd en hátíðin fer fram á Jaðarsbökkum neðan við Akraneshöllina, eins og raunar dagskrá laugardagsins. Á lokahátíð koma fram Brúðubíllinn, Pollapönk og Friðrik Dór. Auk þess verður boðið upp á listasmiðju og þrautabraut, minigolf og margt fleira.

Þá er rétt að vekja athygli á því að Björgunarfélag Akraness verður á Langasandi laugardag og sunnudag á milli kl. 14:00 og16:00 með gúmmíbátana "Axel S" og "Jón M" og býður gestum og gangandi í ævintýralega siglingu. Þetta er eitthvað sem allir verða að prófa!

 

 
Akranesstofa | Stillholt 16-18 | 300 Akranes | Sími 433 1000 | akranes@akranes.is