4. júlí 2010 11:25
Fjölskylduskemmtun í Garðalundi
Í dag fer fram lokadagskrárliður hátíðarhalda Írskra Daga á Akranesi en það er fjölskylduskemmtun í Garðalundi sem hefst kl. 14:00. Þar munu Trjálfarnir skemmta viðstöddum auk þess sem Solla stirða kemur í heimsókn auk Leikhópsins Lottu sem sýna mun leikritið um Hans Klaufa. Þá verður Tilraunalandið á staðnum auk þess sem hoppukastalar verða á staðnum.
Hátíðarhöld helgarinnar hafa tekist mjög vel og frábær þáttaka hefur verið í öllum viðburðum. Skipuleggjendur vilja koma á framfæri þakklætri til allra sem lögðu hönd á plóginn. Þá viljum við þakka öllum þeim sem sáu sér fært að mæta og taka þátt en án þeirra er ekki hægt að halda svona glæsilega hátíð.
Það er von okkar að allir muni koma til með að skemmta sér vel í Garðalundi í dag og fari síðan heilir heim með bros á vör eftir skemmtilega hátíð.