ForsíðaAf hverju ÍrskirDagskráMyndir
3. júlí 2010 10:19

Keppni - keppni

Í dag fara fram alls kyns keppnir í tengslum við Írska daga og hvetum við alla til að taka þátt. Nú í morgun kl 10 hófst keppni í sandkastalagerð á Langasandi. Þar er keppt um fjölmarga titla en verðlaunað verður í eftirfarandi flokkum:

Besti sandkastalinn

Fallegasta listaverkið

Fjölskyldan saman

Yngsti keppandinn.

 

Á stóru bryggjunni hófst einnig dorgveiðikeppni sem haldin er í boði verslunarinnar Model og að sjálfsögðu eru þar veglegir vinningar í boði. Í hádeginu verður svo blásið til grillveislu fyrir utan verslunina Model við Þjóðbraut.

 

Í íþróttahúsinu við Jaðarsbakka verður nóg um að vera þar sem að haldinn verður markaður í dag en hann hefst klukkan 13. Á planinu þar hefur verið komið upp Tívolígræjum sem gestir írskra daga eru hvattir til að prófa. Tvær keppnir munu fara fram í íþróttahúsinu en þar mun keppnin um Hittnustu ömmuna í körfu fara fram milli kl 14 og 16. Þar verður keppt í tveim flokkum; Hittnasta amman og Aldursforsetinn. Verðlaunin eru ekki af verri endanum en sigurvegarar í báðum flokkum fá gjafabréf frá versluninni Bjargi á Akranesi og bikar til eignar. Hittnasta amman fær þar að auki gjafabréf frá Iceland Express. Það er því um að gera fyrir allar ömmur að mæta með körfuboltataktana á Jaðarsbakka í dag.

 

Rauðhærðasti íslendingurinn verður síðan valinn kl 15 en þar fær efnilegasti rauðhausinn verðlaunabikar. Í verðlaun fyrir titilinn rauðhærðasti íslendingurinn er gjafabréf frá Iceland Express auk þess sem sigurvegarinn fær bikar til eignar.

 

Ýmiss konar afþreying er þar að auki í boði á Akranesi í dag auk tívolísins og markaðarins á Jaðarsbökkum. Á Safnasvæðinu munu víkingahóparnir Hringhorni og Rimmugýgur vera með bardaga og leikjasýningar kl 13, kl 15 og kl 17 auk þess sem sagnaþulan Þóra Gríms segir sögur úr goðafræði kl 16.

 

Þá hefur verið komið upp Go-kart braut á planinu við Tónberg og Lazer tag og litboltavöllur er við Sementsþrónna við Faxabraut. Þá verður glæsileg bílasýning Bílaklúbbs Vesturlands og Bílaklúbbsins Krúser á planinu fyrir framan Stjórnsýsluhúsið við Stillholt.

 

Svo má ekki gleyma Brekkusöng og Lopapeysu í kvöld.

 

Það er því nóg um að vera á Skaganum í dag og vonum við að allir skemmti sér sem best.  

 

 
Akranesstofa | Stillholt 16-18 | 300 Akranes | Sími 433 1000 | akranes@akranes.is