ForsíðaAf hverju ÍrskirDagskráMyndir
2. júlí 2010 15:35

Opnunarhátíð og dagskráin framundan

Írskir dagar voru formlega settir kl 10 í morgun á Safnasvæðinu. Þar komu leikskólabörn bæjarins saman og mynduðu írska fánann í brekkunni við Byggðasafnið. Guðmundur Páll Jónsson setti hátíðina formlega fyrir hönd bæjarstjórnar og síðan birtist leynigesturinn, sjálfur Ingó Veðurguð og söng nokkur lög með viðstöddum. Krakkarnir voru í skýjunum yfir þessum óvænta gesti og tóku vel undir með honum í brekkusöngnum. Hér er að finna myndir frá opnunarhátíðinni.

Íbúar Akraness eru nú í óða önn við að skreyta garða sína, hús og götur og gera allt klárt fyrir götugrillin sem haldin verða víða um bæinn í kvöld. Þá tekur við kvöldvakan í miðbænum þar sem Ingó Veðurguð mætir á ný auk þess sem Helgi Björns og reiðmenn vindanna taka lagið fyrir gesti hátíðarinnar.

 

Á morgun verður síðan nóg um að vera á Jaðarsbakkasvæðinu að ógleymri Sandkastalakeppninni sem hefst á Langasandi kl 10 í fyrramálið. Við hvetjum alla til að mæta þangað og taka þátt þar sem vegleg verðlaun eru í boði í fjölda flokka.

 

Brekkusöngurinn og Lopapeysan eru á sínum stað annað kvöld svo og fjölskylduskemmtunin í Garðalundi á sunnudag.

 

Góða skemmtun á írskum dögum. 

 
Akranesstofa | Stillholt 16-18 | 300 Akranes | Sími 433 1000 | akranes@akranes.is