Um næstu helgi, dagana 1. til 3. júlí, verða Írskir dagar haldnir á Akranesi en þetta er í tíunda skiptið sem hátíðin er haldin. Gert er ráð fyrir að fjöldi gesta taki þátt í þessari fjölbreyttu fjölskylduskemmtun. Undirbúningur gengur vel og veðurútlitið lofar góðu. Tjaldsvæðið í Kalmansvík á Akranesi verður fjölskyldutjaldsvæði á Írskum dögum. Þetta þýðir að öllum unglingum og ungu fólki yngra en 23 ára verður vísað frá tjaldstæðinu, nema um sé að ræða fjölskyldufólk, þ.e. foreldra með börnin sín. Gripið hefur verið til sambærilegra aðgerða undanfarin ár - af gefnu tilefni - og með góðum árangri. Öflug gæsla verður á svæðinu alla helgina, sérhæfðar gæslusveitir, björgunarsveitir og lögregla ásamt starfsfólki tjaldsvæðisins til að tryggja að allt fari vel fram.
Sérstök verðskrá gildir á tjaldsvæðinu í Kalmansvík á Írskum dögum. Allir gestir 14 ára og eldri greiða 2.000 kr. fyrir alla helgina, einnig greiðast 2.000 kr. fyrir hvern gististað; tjald, fellihýsi, hjólhýsi eða húsbíl. Innifalin í gjaldinu er aðgangur að allri aðstöðu og þjónustu á svæðinu, m.a. þvottavél, þurrkara, sturtum og rafmagni. Hver gestur fær armband til auðkennis sem gildir sem aðgangur að tjaldsvæðinu þessa helgi. Vinsamlegast athugið að Útilegukortið gildir ekki á tjaldsvæðinu í Kalmansvík þessa helgi. Sturtuaðstaða og þvottahús er opin frá kl 07:00 til 22:00.
Almennar umgengnisreglur sem gestir á tjaldsvæðinu eru vinsamlegast beðnir að virða:
1. Bifreiðastöður eru bannaðar á tjaldsvæðinu, vinsamlegast leggið bílum á bílastæðum. Öll óþarfa umferð um tjaldsvæðið skapar hættu og er bönnuð - Þetta er fjölskyldutjaldsvæði og börn að leik á milli húsa og á götum svæðisins.
2. Undantekningarlaust á að vera komin á næturró kl. 23:00 á kvöldin.
3. Verði gæsluaðilar varir við unglingadrykkju á svæðinu verður málið umsvifalaust kært til lögreglu. Hið sama gildir að sjálfsögðu ef grunur er um fíkniefnaneyslu á svæðinu.
4. Allar skemmdir sem gestir vinna á aðstöðu eða eignum annarra verða kærðar til lögreglu.
Brot á ofangreindum reglum varða brottvísun af tjaldsvæðinu. Aðstandendur Írskra daga vonast til þess að allir skemmti sér vel á Írskum dögum og haldi heim á leið með góðar minningar frá Akranesi!
Fjölbreytta og glæsilega dagskrá hátíðarinnar má skoða á vef Írskra daga – www.irskirdagar.is