Rauðhærðasti Íslendingurinn
Hin annálaða keppni rauðhærðra Íslendinga á öllum aldri um það hver þeirra er rauðhærðastur verður að sjálfsögðu haldin á Írskum dögum í sumar, nánar tiltekið laugardaginn 2. júlí 2011 kl. 15:00 við Akraneshöllina.
Vitað er að fólk hefur fyrir löngu hafið undirbúning með tilheyrandi hár- og skeggsöfnun og -snyrtingum. Væntingarnar eru miklar, bæði meðal keppenda og ekki síður áhorfenda.
Úrslitakeppnin fer fram laugardaginn 2. júlí kl. 15:00 en rauðhærðir eru þó beðnir um að koma a.m.k. 15 mínútum fyrr á svæðið svo dómnefnd geti skoðað og metið allt þeirra rauða hár.
Ef þú ert rauðhærð/-ur og til í spennandi keppni þá skráðu þig endilega til þátttöku. Þú gætir hugsanlega unnið til glæsilegra vinninga en þú kemur örugglega til með að skemmta þér konunglega!
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á eftirfarandi netfang:
tomas.gudmundsson@akranes.is