Írskir dagar á Akranesi 1. - 3. júlí 2011
Fjölbreytt dagskrá alla helgina m.a.:
Í gangi alla Írsku dagana - Gamli vitinn á Breiðinni - Ljósmyndasýning
Hin árlega ljósmyndasýning í Gamla vitanum á Breiðinni á Írskum dögum. Á sýningunni verða ljósmyndir sem sýna stiklur úr sögu sjósóknar og útgerðar á Akranesi. Friðþjófur Helgason, ljósmyndari hefur umsjón með sýningunni nú eins og mörg undanfarin ár.
30. júní til 3. júlí Húllum hæ hjá Model á Írskum dögum.
Tilboð á ýmsum vörum á Írskum dögum, t.d. flott Landmann grill, hverju grilli fylgir að auki dýrindissteik fyrir götugrillið. Óvæntur glaðningur fylgir til allra sem versla í Model á Írskum dögum. Laugardaginn 2. júlí býður Model upp á grillaðar pylsur í hádeginu.
Fimmtudagur 30. júní
13:00 - 17:00 Listasetrið Kirkjuhvoll - „Þjóðin, landið og lýðveldið“
Sýning á ljósmyndum Vigfúsar Sigurgeirssonar frá 1936-1960.
Sýningin er unnin af Þjóðminjasafni Íslands en þar má m.a. sjá landlagsmyndir, myndir unnar fyrir heimssýninguna í New York 1939, myndir af fólkinu í landinu við leik og störf auk mynda frá ferðum Vigfúsar innanlands með tveimur fyrstu forsetum lýðveldisins.
16:00 til 17:30 Húsasmiðjan við Smiðjuvelli
Hin árlega grillveisla Húsasmiðjunnar á Akranesi á Írskum dögum! Tilvalið að koma við og fá sér eina með öllu! Húsasmiðjan hefur verið dyggur þátttakandi í Írskum dögum um árabil og boðið gestum og gangandi upp á gómsætar, grillaðar pylsur með öllu!
20:00 Garðakaffi - Írsk vaka í Garðakaffi
Þorvaldur Friðriksson, fornleifafræðingur og fréttamaður og Gísli Sigurðsson, prófessor hjá Árnastofnun fjalla um keltnesk áhrif í íslenskri tungu, menningu og umhverfi. Að því loknu mun írska hljómsveitin "Na Draoithe" leika ekta írska tónlist.
21:00 Stúkuhúsið á Safnasvæðinu í Görðum
"Stúkurnar" flytja öll sín þekktustu Stúkulög og keltneska tónlist í bland. Aðgangseyrir kr. 500.
Veitingahúsið Breiðin - Hjálmar
Föstudagur 1. júlí
10:00 – 11:00 Opnunarhátíð Írskra daga 2010
Leikskólabörn á Akranesi koma saman á Safnasvæðinu og opna hátíðina - óvæntur gestur kíkir í heimsókn!
Listasetrið Kirkjuhvoll - „Þjóðin, landið og lýðveldið“
Sýning á ljósmyndum Vigfúsar Sigurgeirssonar frá 1936-1960.
13:00 – 22:00 Go Kart á planinu við Bónus. ATH! Breyttur tími - opið til 22:00.
16:00 Lasertag og litboltavöllur (Paintball)
Götugrillin vinsælu um allan bæ um kvöldið!
22:00 Kvöldvaka í Miðbænum - Vinir Sjonna
Vinir Sjonna koma fram og syngja nokkur lög! Tónleikarnir verða sendir út í beinni útsendingu á Rás 2.
Veitingahúsið Breiðin - GusGus
Gamla Kaupfélagið - Vinir Sjonna.
Laugardagur 2. júlí
08:00 Garðavöllur – Opna „Guinness“ mótið
Opið golfmót á Garðavelli, Akranesi. Keppnisfyrirkomulag er Texas scramble. Hámarksforgjöf er 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Ræst út frá kl. 08:00. Teiggjafir frá Ölgerðinni. Stórglæsileg verðlaun í boði! Keppnisgjald er 4.500 kr. á einstakling. Skráning á golf.is og í síma 431 2711. Gætið þess að samherjar séu skráðir saman á rástíma.
Listasetrið Kirkjuhvoll - „Þjóðin, landið og lýðveldið“
Sýning á ljósmyndum Vigfúsar Sigurgeirssonar frá 1936-1960.
10:00 Víkingar á Safnasvæðinu
Víkingahóparnir Hringhorni og Rimmugýgur sýna bardagalistir og víkingaleiki á Safnasvæðinu á Akranesi og verða á svæðinu allan daginn.
10:00 Dorgveiðikeppni á "Stóru bryggjunni" (Aðalhafnargarði) í boði verslunarinnar Módel á Akranesi. Glæsilegir vinningar í boði.
11:00 „Akrafjallsmótið“ í hjólreiðum. Keppt í tveimur flokkum karla og kvenna og unglingaflokki. Ræst verður frá Bónus og þar er einnig endamark keppninnar. Hjólað verður í kringum Akrafjall. Skráning hjá Nes-sport og á staðnum. Kl. 13:00 verður grill, go-kart og hoppkastalar á planinu við Bónus en „Akrafjallsmótinu“ lýkur á sama tíma.
11:00 Mýrarboltamót Írskra daga á svæðinu við Garðalund Ævintýrafélagið stendur fyrir Mýrarboltamóti á Írskum dögum. Mótið hefst kl. 11:00 og lýkur kl 18:00, og fer fram við Garðalund [gömlu skólagörðunum]. Skráning fer fram á aevintyrafelagid@gmail.com og hefst hún á föstudaginn 24. júní og lýkur á miðnætti fimmtudaginn 30. júní. Í hverju liði þurfa að vera 10 til 15 manns og er aldurstakmarkið 18 ára [þurfa að vera á átjánda ári]. Skráningargjald er 3000 kr. á hvert lið. Veglegir vinningar eru í boði, þar á meðal eru vinningar veittir fyrir flottasta búninginn, skítugustu manneskjuna, hressasta liðið, besti leikmaðurinn auk þess sem sigurvegari mótsins ávinnur sér rétt til þátttöku í Evrópumótinu í Mýrarbolta sem fram fer um verslunarmannahelgina á Ísafirði. Nánari upplýsingar um mótið er að finna hér.
12:00 Verslunin Model býður gestum og gangandi upp á grillaðar pylsur í hádeginu.
12:00 - 16:00 Verslun Model og Vodafone á Akranesi - Keppt í tölvuleiknum Angry Birds á Írskum dögum
Keppnin fer fram fyrir utan verslunina Model og er opin öllum. Tveir stigahæstu eftir daginn komast í úrslitakeppnina sem haldin verður í Smáralind þann 21. júlí auk þess að fá Angry Birds tuskudýr, bol, 990 kr. Risafrelsi og bíómiða í verðlaun.
Farsímatölvuleikurinn Angry Birds hefur slegið í gegn síðustu misseri og varla til sá snjallsímaeigandi sem hefur ekki prófað að skjóta bálreiðum fuglum með teygjubyssu í bannsett svínin sem eru alltaf að stela frá þeim eggjum. Nú hefur Vodafone blásið til fyrstu Íslandsmeistarakeppninnar í Angry Birds og mun ein undankeppnin fara fram á Írskum dögum. Að auki verður risastór Angry Birds braut sett upp og geta áhugasamir spreytt sig á að reyna að skjóta niður svín með stærstu teygjubyssu landsins. Nánari upplýsingar um keppnina má finna með því að smella hér!
Nýtt á dagskrá 12:00 Bryggjugolf við Akraneshöfn
Afrekshópar golfklúbbsins Leynis verða með bækistöðvar við Hafnarhúsið á Akranesi upp úr hádeginu og fram eftir degi. Þetta er heldur óvenjuleg staðsetning fyrir kylfinga, en gestir og gangandi á Írskum dögum geta slegið golfbolta á skotmark úti á Akraneshöfn gegn vægu gjaldi. Er þetta fjáröflun fyrir afreksstarf Leynismanna. Leikurinn gengur út á að þeir sem hitta skotmarkið fá nafn sitt í pott og eiga þar með möguleika á að vinna til veglegra verðlauna. Það er verslunin Omnis sem er bakhjarl Leynismanna í þessu verkefni.
13:00 Grillveisla hjá Bónus í boði Bónus, SS, Myllunnar, Vífilfells og Ölgerðarinnar en „Akrafjallsmótinu“ lýkur á sama tíma. Glaðningur frá Nóa Sírius og Svali mætir galvaskur á staðinn! Go-kart og hoppkastalar!
13:00 Jaðarsbakkar - Kraftaáskorun á Akranesi
Keppnisgreinar eru Húsafellshelluburður, Sirkus handlóð og Atlassteinn.
Keppt verður bæði í 105 kg flokki og opnum flokki. Allir hvattir til að taka þátt! Glæsileg verðlaun í boði m.a. G-Shock úr, prótein o.fl. Stjórnandi Kraftaáskorunar á Akranesi er hinn eini og sanni Hjalti "Úrsus" Árnason! Hafþór Júlíus Björnsson, sterkasti maður íslands mætir á svæðið og hann ætlar sér að setja Íslandsmet í Húsafellshelluburði. Skráning í gangi á netfanginu hjaltiar@simnet.is og í síma 897 8626.
13:00 Lasertag og litboltavöllur (Paintball)á svæðinu við Sementsverksmiðju
13:00 Sandkastalakeppni á Langasandi - Ath. breytingu á tímasetningu! Keppnin hefst kl. 13:00 en ekki kl. 10:00 eins og áður var auglýst! Keppt er í eftirtöldum flokkum: Besti sandkastalinn - Fallegasta listaverkið - Fjölskyldan saman - Yngsti keppandinn. Glæsileg verðlaun eru í boði - allir sigurvegarar fá bikara og gjafabréf í Bíóhöllina en allir þátttakendur fá verðlaunapeninga. Mætið á Langasand með skóflur, fötur og frábærar hugmyndir um ódauðleg listaverk úr sandi!
13:00 -17:00 Markaðsstemning í Akraneshöllinni! Frábært tækifæri til að gera góð kaup. Handverk, listmunir, prjónavörur, leikföng, fatnaður, margskonar góðgæti og fleira og fleira!
13:00 – 16:00 Bílasýning á planinu við Stjórnsýsluhúsið að Stillholti 16 – 18.
Krúser klúbburinn kemur í heimsókn og sýnir glæsivagna. Veltibíll Sjóvá verður á staðnum fyrir gesti og gangandi og björgunarsveitarbílar verða til sýnis.
13:00 -15:00 Kökuskreytingakeppni Írskra daga og mömmur.is í Akraneshöllinni. Vertu með í þessari skemmtilegu keppni! Skráning í gangi á mömmur.is! Smelltu hér til að skrá þig! Úrslit verða kynnt kl. 15:00.
13:00 - 17:00 Vélhjólasýning í Akraneshöllinni. Fullt af flottum vélfákum til sýnis!
13:00 - 17:00 Leikjaland á Jaðarsbökkum, neðan við Akraneshöll á vegum Alltaf gaman! Fullt af skemmtilegum leikjum fyrir alla fjölskylduna!
13:00 - 17:00 Listasmiðja á Jaðarsbökkum, neðan við Akraneshöll Írskir búálfar verðum við! Litum, klippum, málum og heftum og úr verður búálfaGRÍMA! Fyrir alla fjölskylduna. Umsjón hugMYND myndlistarmiðstöð.
13:00 – 22:00 Go Kart á planinu við Bónus. ATH! Breyttur tími - opið til 22:00.
13:00 Tívolístemning við Akraneshöllina
14:00 – 15:00 AutoX aksturskeppni á planinu bak við Krónuna.
Það verður stutt braut þar allar gerðir bifreiða geta tekið þátt. Hægt að skrá sig til 30.júní á bikrsport@gmail.com, þáttökugjald er kr. 500,-. Upplýsingar á www.bikr.is. Verðlaun í boði frá OMNIS og Guðmundi B. Hannah fyrir 3 efstu sætin.
Nýtt á dagskrá 14:00 - 16:00 Gúmmíbátasiglingar með Björgunarfélagi Akraness
Björgunarfélag Akraness verður á Langasandi með gúmmíbátana "Axel S" og "Jón M" og býður gestum og gangandi í ævintýralega siglingu.
14:00-16:00 „Hittnasta amman“ í körfu á Jaðarsbakkasvæðinu!
Einstakt tækifæri fyrir hittnar ömmur. Skráning á staðnum. Glæsilegir vinningar í boði.
14:00 – 16:00 Gallerí Urmull, Kirkjubraut 54-56
Boðið verður upp á „írskar“ pönnukökur og vöfflur gegn vægu gjaldi. Einnig verður boðið upp á skemmtilega afþreyingu fyrir börn á öllum aldri.
15:00 Rauðhærðasti Íslendingurinn á Jaðarsbökkum!
Allir rauðhærðir hvattir til að mæta til keppni. Glæsilegir vinningar í boði! Skráning með tölvupósti hjá tomas@akranes.is eða á staðnum.
15:30 – 17:00 „Mammúng“ á Jaðarsbökkum við Akraneshöllina - Tónleikar!
Dagur Sigurðsson, sigurvegari í söngkeppni framhaldsskólanna, Óskar Axel, Júlí Heiðar, Bjartur Elí, Kristmundur Axel, Mollý, MC Biggi og Ragnheiður Erla!
20:30 Stúkuhúsið á Safnasvæðinu í Görðum
Rífandi írsk stemning, keltnesk tónlist og annað góðgæti útsett og flutt af Stúkunum í boði Oran Mór. Aðgangseyrir kr. 500.
22:00 Írsk stemning í Garðakaffi - Írska hljómsveitin "Na Draoithe leikur ekta írska tónlist!
22:45 „Þyrlupallur“ við Akranesvöll - Brekkusöngur
Lopapeysan 2011
Stærsta og magnaðasta ball ársins á Íslandi! Papar, Ingó & Veðurguðirnir, Björgvin Halldórsson, Hreimur ofl. halda uppi stuðinu og spila fram undir morgun!
Gamla Kaupfélagið - Bogomil Font, Bjarni Ara og Milljónamæringarnir
Sunnudagur 3. júlí
Listasetrið Kirkjuhvoll - „Þjóðin, landið og lýðveldið“
Sýning á ljósmyndum Vigfúsar Sigurgeirssonar frá 1936-1960.
10:00 Víkingar á Safnasvæðinu
Víkingahóparnir Hringhorni og Rimmugýgur sýna bardagalistir og víkingaleiki á Safnasvæðinu á Akranesi.
13:00 – 22:00 Go Kart á planinu við Bónus. ATH! Breyttur tími - opið til 22:00.
Ath! 14:00 – 16:00 Fjölskyldudagur á Jaðarsbökkum - Lokahátíð Írskra daga 2011!
Skemmtilegur dagur fyrir alla fjölskylduna! Brúðubíllinn, Pollapönk og Friðrik Dór! Listasmiðja - Írskir búálfar verðum við! Litum, klippum, málum og heftum og úr verður búálfaGRÍMA! Fyrir alla fjölskylduna. Umsjón hugMYND myndlistarmiðstöð. Krakkaþrautir - Halla Heimisdóttir, íþrótta- og lýðheilsufræðingur verður með hreystiþrautir fyrir börn!
Nýtt á dagskrá 14:00 - 16:00 Gúmmíbátasiglingar með Björgunarfélagi Akraness
Björgunarfélag Akraness verður á Langasandi með gúmmíbátana "Axel S" og "Jón M" og býður gestum og gangandi í ævintýralega siglingu.
Aðgangur að dagskrá Írskra daga er ókeypis nema annað sé tekið fram!