Írskir dagar 3. til 5. júlí 2009 – hátíð allra Skagamanna!
Írskir dagar verða haldnir í áttunda skiptið í ár og hefur hátíðin vaxið og dafnað með hverju árinu. Þrátt fyrir það andstreymi sem þjóðin hefur mætt á undanförnum mánuðum verður enn á ný blásið til hátíðar í sumar og má e.t.v. segja að oft hafi verið þörf en nú sé nauðsyn fyrir skemmtilega hátíð á borð við Írska daga. Þó er ljóst að Írskir dagar 2009 verða með talsvert örðum blæ en verið hefur á undanförnum árum, meira verður sótt til heimamanna um þátttöku og skemmtilegheit og áhersla lögð á hófstilltari umgjörð og heimatilbúin atriði. Það má því segja að nú þurfi allir sem einn að leggjast á árar við hátíðahöldin.
Ítrekað skal að hátíðin fer fram fyrstu helgi júlímánaðar en á fyrstu árum hennar voru Írskir dagar haldnir aðra helgina í júlí. Hátíðin var færð fram um eina viku vegna fjölda áskorana fólks sem vildi taka þátt í hátíðinni en óskaði eftir þessari tilfærslu til að geta nýtt sumarleyfistíma sinn betur. Við þessum óskum var að sjálfsögðu brugðist með jákvæðum hætti.
Áfram verður það haft að leiðarljósi við skipulag Írskra daga að þar sé boðið upp á fjölskylduvæna hátíð þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Nýir dagskrárliðir bætast við á hverju ári en meðal fastra liða má nefna sandkastalakeppnina á Langasandi, sem telja verður einn skemmtilegasta viðburð Írskra daga. Stefnt er að því að fjölga keppnisflokkum í ár og veita margvísleg verðlaun fyrir ýmsar tegundir listaverka - úr sandi.
Á Írskum dögum er dorgveiðikeppnin á „Stóru“ bryggjunni meðal fastra liða en bakhjarl keppninnar undanfarin ár hefur verið verslunin Model. Fjöldi barna á öllum aldri hefur jafnan tekið þátt í keppninni og hefur oft mikið gengið á við fiskeríið á bryggjunni.
Árlega fer fram keppnin um rauðhærðasta Íslendinginn og voru keppendur í fyrra liðlega 60 talsins. Vinningshafi í keppninni fær flugferð fyrir tvo til höfuðborgar rauðhærða fólksins, Dublin á Írlandi en einnig eru veitt sérstök verðlaun fyrir þá allra yngstu – og rauðhærðu. Keppnin um hittnustu ömmuna hefur slegið í gegn og eru keppendur jafnan um 50 talsins. Sigurvegarinn er alltaf leystur út með veglegum vinningum.
Á Írskum dögum í sumar má reikna með fleiri leikjum og keppnum þar sem þátttaka gesta og gangandi er lykilatriði. Nánar verður fjallað um þessa viðburði þegar nær dregur. Síðast en ekki síst má svo nefna hið árlega Lopapeysuball en heyrst hefur að það verði með allra glæsilegasta móti þetta árið. Það má því reikna með miklu stuði á bryggjunni á Írskum dögum í ár!
Aðrir fastir liðir eru hin geysivinsælu götugrill víðs vegar um bæinn á föstudeginum en þá eru flestar götur bæjarins lokaðar af á einhvern hátt og stórum grillveislum slegið upp. Írskt skreytingarefni var uppselt á landinu á síðasta ári þar sem íbúar leggja ávallt mikinn metnað í skreytingarnar og hvarvetna má sjá írska fána, blöðrur og veifur. Fólk er því hvatt til að huga snemma að skreytingum í ár og skreyta jafnvel fyrr en áður – allt til að skapa réttu stemninguna! Seinna á föstudagskvöldinu er svo stefnt að tónleikum í miðbænum þar sem tónlistarfólk af Skaganum treður upp.
Dagskrá laugardagsins verður með nokkuð hefðbundnu sniði þar sem boðið verður upp á margvíslega skemmtun. Dagskráin hefst að venju á sandkastalakeppninni á Langasandi og dorgveiðikeppni á „Stóru“ bryggjunni. Hver viðburðurinn rekur svo annan, m.a. markaður, leikir og margvísleg skemmtun. Um kvöldið fer svo „Lopapeysan 2009“ fram að venju. Á sunnudeginum verður skemmtun í Garðalundi með tónlist og leikjum fyrir börn á öllum aldri.
Nánari dagskrá verður kynnt fljótlega og er fólk hvatt til að fylgjast vel með hér á vef Írskra daga. Einnig eru Skagamenn hvattir til að láta í sér heyra ef upp koma hugmyndir eða tillögur um dagskrá eða aðra skemmtun. Þá er öllum velkomið að taka þátt í undirbúningnum!
Verið velkomin á Írska daga!
Fyrir hönd skipuleggjenda,
Tómas Guðmundsson,
verkefnastjóri Akranesstofu
tomas.gudmundsson@akranes.is