Írskir dagar
 Flýtileiðir
Fréttir - 5. júlí 2009

Skemmtun í Garðalundi í dag!

Formlegri dagskrá Írskra daga 2009 lýkur með fjölskylduskemmtun í dag, sunnudaginn 5. júlí. Af óviðráðanlegum orsökum verður ekki boðið upp á grillveislu í dag eins og verið hefur undanfarin ár. Hins vegar eru grillin heit og því geta gestir grillað upp á eigin spýtur. Meðal þess sem boðið verður upp á í dag er Brúðubíllinn, danssýningar og þá eru hoppkastalar á svæðinu.

 

Fréttir - 3. júlí 2009

Írskir dagar formlega settir!

Írskir dagar hófust formlega í morgun þegar tæplega 200 börn frá leikskólum bæjarins komu saman í miðbænum, sungu og skemmtu sér. Hver leikskóli var klæddur í litum írska fánans og saman mynduðu börnin fánann á miðju Merkurtúninu. Þaðan var haldið í skrúðgöngu á Akratorg þar sem börnin tóku lagið með Gísla S. Einarssyni, bæjarstjóra og öðrum gestum sem fjölmenntu á torgið.

 

Dagskrá Írskra daga heldur áfram í dag og kvöld; gera má ráð fyrir að velflestir bæjarbúar taki þátt í götugrillum víðs vegar um bæinn og í kvöld stígur Páll Óskar á svið á kvöldvöku í miðbænum. Kvöldvakan hefst kl. 22:00 en ekki 22:20 eins og áður hefur verið auglýst. Á undan tónleikum Páls Óskars verða tískusýningar frá tískuvöruverslunum á Akranesi og verslanir í miðbænum verða opnar.

 

Á morgun verður fjölbreytt dagskrá á Jaðarsbökkum og m.a. verður útsýnisflug með þyrlu, en þessi dagskrárliður náði ekki inn í áður auglýsta dagskrá.

 

Á sunnudaginn verður fjölskyldudagskrá í Garðalundi þar sem Brúðubíllinn mun skemmta, Fimleikafélag Akraness sýnir dans og sömuleiðis krakkar frá Mangó Studio. Meðal þess sem boðið hefur verið upp á undanfarin ár er grillveisla en því miður er ekki hægt að halda slíka veislu í ár af óviðráðanlegum orsökum. Fólk er hins vegar hvatt til þess að taka með sér grillmeti að heiman og skella á grillin í skógræktinni.

 

Góða skemmtun á Írskum dögum!